Johann Sebastian Bach (1685 - 1750) Þýskaland
Article Index
Bach fæddist inn í fjölskyldu sem ól af sér 53 vel þekkta tónlistarmenn í sjö kynslóðum. Jóhann hinn ungi lærði fyrst af föður sínum en þegar hann lést flutti hann til bróður síns sem var organisti og hélt námi sínu áfram hjá honum. Á þeim tíma sem Bach var uppi voru tónlistarmenn raunverulega verkamenn, þ.e.a.s. þeir skrifuðu tónverk eftir pöntunum og eftir því hvaða stöðu þeir gegndu. Bach var t.d hirð organisti í Weimar og á þeim tíma samdi hann helstu orgelverk sín og einnig má geta þess að hinir frægu Brandenburg konsertar voru samdir fyrir markgreifann af Brandenburg. Lengsta og mikilvægasta staða sem Bach gegndi var sem kantor við kirkju Sankti Tómasar við Leipzig og á því tímabili skrifaði hann megnið af allri kirkjutónlistinni sem í dag er afar vel þekkt. Hins vegar var hann ekki sérlega ánægður með þá stöðu, því mestur tími hans fór í að kenna, spila við messur, syngja við jarðarfarir og sinna öðrum hlutum sem staðan krafðist af honum. Það þýddi að hann hafði nánast engan tíma til að semja tónlist og féll honum það illa í geð. Auk þess var hann ekki góður kennari og átti í basli með að hemja piltanna í skólanum. Þrátt fyrir það samdi hann 295 kantötur á þeim 27 árum sem hann bjó í Leipzig. Hann giftist tvisvar á lífsleiðinni og eignaðist alls 20 börn. Síðustu árin var hann orðinn mjög sjóndapur og alveg blindur síðasta æviárið og lést svo 1750 í kjölfarið á misheppnaðri augnaðgerð sem átti að færa honum sjónina aftur.
Það sem gerði Bach að einstöku tónskáldi var sá hæfileiki hans að geta samið tónlist í sérhverjum af þeim mörgu stílum sem tíðkuðust á Barrok tímabilinu. Það var annars vegar vegna þess að hann sinnti um ævina ólíkum stöðum sem kröfðust ólíkrar tónlistar og hins vegar vegna þess hversu duglegur hann var við að læra og grandskoða alla þá tónlist sem hann komst í. Alla ævi gleypti hann í sig tónlist samtímamanna sinna og með því að liggja yfir þessum verkum (og oft útsetja verkin upp á nýtt fyrir önnur hljóðfæri), öðlaðist hann mikla yfirsýn á hinum ýmsu þjóðlegu og persónulegu stílum samtímans. Alla ævi fléttaði hann þessar hugmyndir við sinn eigin persónulega stíl.
Hitt er annað mál að á meðan Bach lifði var hann best þekktur fyrir að vera fremsti organisti Þýskalands og harpsíkordleikari, enda spilaði hann mikið og víða framanaf ævi sinni. Almenningur á þessum tíma kunni hinsvegar ekki að meta tónlist hans; þeim fannst hún gamaldags og vildi heldur heyra tónverk minni spámanna sem þá voru í tísku en eru nú flest fallin í gleymskunnar dá. Það var ekki fyrr en 80 árum eftir dauða Bachs að rykið var blásið af verkum hans og farið að flytja þau á ný og fljótlega uppúr miðri 19.öld var hann settur á þann stall sem honum bar: sem einn mesti snillingur tónlistarsögunnar.
Hljóðdæmi
Air On The G String | ||||||||||
Verk fyrir fiðlu og hljómsveit
|
||||||||||
Brandenburgarkonsert númer 1 í F dúr, adagio | ||||||||||
Eini hluti konsertsins sem er í fjórum hlutum
|
||||||||||
Brandenburgarkonsert númer 5 | ||||||||||
Þessi hluti er í D-dúr. Aðalhljóðfæri þessa hluta er semball, fiðla og flauta.
|
||||||||||
Brandenburgarkonsert númer 2 | ||||||||||
Er í F-dúr. Sóló hljóðfæri eru: Blokkflauta, trompet í F, óbó og fiðla
|
||||||||||
Hljómsveitarsvíta 3, gavotte | ||||||||||
Ein af fjórum hljómsveitarsvítum sem Bach samdi
|
||||||||||
Ítalskur konsert í F-dúr | ||||||||||
Eitt frægasta hljómborðsverk Bachs sem var frumflutt árið 1735
|
||||||||||
Kantata nr.140 | ||||||||||
,,Sleepers Awake, the Voice is Calling" er mjög vinsæl kantata eftir Bach
|
||||||||||
Toccata og fúga í d moll | ||||||||||
Mjög vinsælt verk fyrir orgel. Talið er að það hafi verið samið einhvern tímann á árunum 1703-1707 og er þá eitt af fyrri verkum Bachs
|
||||||||||
Celló svíta nr.3 í c dúr | ||||||||||
Svíta númer 3 af 6
|
||||||||||
Menúett í G dúr | ||||||||||
Úr nótnaheftinu þekkta sem Bach gerði fyrri Önnu Magdalenu Bach.
|
||||||||||
Menúett í G moll | ||||||||||
Einnig úr Anna Magdalena Bach
|
||||||||||
Pólónesa úr Önnu Magdalenu Bach | ||||||||||
Verkin úr þessu þekkta hefti eru mikið spiluð af píanónemendum og sökum gæði tónlistarinnar sem þar er að finna er heftið enn í fullri notkun um allan heim.
|
||||||||||
Invention nr.1If you cannot see the score, get the Sibelius Scorch plug-in here Invention nr.4
If you cannot see the score, get the Sibelius Scorch plug-in here
Invention nr.5If you cannot see the score, get the Sibelius Scorch plug-in here
Invention nr.13If you cannot see the score, get the Sibelius Scorch plug-in here
Jesu, hope of men despairingIf you cannot see the score, get the Sibelius Scorch plug-in here
If you cannot see the score, get the Sibelius Scorch plug-in here
If you cannot see the score, get the Sibelius Scorch plug-in here
If you cannot see the score, get the Sibelius Scorch plug-in here
If you cannot see the score, get the Sibelius Scorch plug-in here
If you cannot see the score, get the Sibelius Scorch plug-in here
|